KPMG er leiðandi ráðgjafar- og þekkingarfyrirtæki sem þjónustar fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Starfsmenn KPMG á Íslandi eru um 290 á 16 skrifstofum og starfsstöðvum. Höfuðstöðvar eru að Borgartúni 27, þar sem tæplega 220 manns vinna.
Á heimsvísu starfa meira en 20 þúsund manns hjá KPMG í 154 löndum og landsvæðum. Samstarf þessa stóra hóps byggir á reglubundnu gæðaeftirliti og aðgangi að upplýsingum sem tryggir fagþekkingu í heimsklassa og sömu þjónustu í öllum heimshornum.
KPMG ehf. var stofnað 4. september 1975. Samkvæmt samþykktum félagsins er tilgangur þess að annast hvers konar endurskoðunar- og ráðgjafarþjónustu. Hluthafar í félaginu eru 38 og eru allir starfandi í félaginu.
Stjórnskipulag félagsins er tilgreint í samþykktum þess og samkvæmt þeim fara eftirfarandi með stjórn KPMG ehf.:
Hluthafafundir.
Stjórn félagsins.
Framkvæmdastjóri.
Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum og eru þeir allir hluthafar. Stjórnina skipa eftirfarandi:
Svanbjörn Thoroddsen, stjórnarformaður
Ágúst Karl Guðmundsson
Hlynur Sigurðsson
Hrafnhildur Helgadóttir
Kristrún Helga Ingólfsdóttir
Framkvæmdastjóri félagsins, Jón Sigurður Helgason, er hluthafi.
KPMG á Íslandi er skipt í þrjú svið. Þau eru:
Endurskoðunarsvið, sviðsstjóri er Guðný Helga Guðmundsdóttir. Innan endurskoðunarsviðs starfar uppgjörs- og bókhaldssvið sem Birna Mjöll Rannversdóttir veitir forstöðu.
Ráðgjafarsvið, sviðsstjóri er Benedikt K. Magnússon.
Skatta- og lögfræðisvið, sviðsstjóri er Soffía Eydís Björgvinsdóttir.